top of page

Útgáfutónleikar: Bergmál fjallanna // Græni hatturinn


Tickets are not on sale
Útgáfutónleikar: Bergmál fjallanna // Græni hatturinn
Útgáfutónleikar: Bergmál fjallanna // Græni hatturinn

Time & Location

Nov 05, 2026, 9:00 PM – 10:00 PM

Græni hatturinn, Hafnarstræti, 600 Akureyri, Iceland

About the event

Miðasala: https://www.graenihatturinn.is/is/tickets/277 Tónskáldið, píanóleikarinn og söngkonan Sigurdís Tryggvadóttir gefur út sína fyrstu plötu, Bergmál fjallanna. Tónlist Sigurdísar á rætur sínar í djassi en innblásturinn að tónsmíðunum sækir hún í uppruna sinn á Norðurlandi vestra, landslagið sem mótaði hana, fjöllin sem umlykja heimahagana og bergmálið sem endurómar þeirra á milli.


Þessir endurómar tengjast arfleifð Jónasar Tryggvasonar (1916–1983), afabróður Sigurdísar. Hann lést áratug áður en hún fæddist en þau tengjast í gegnum sameiginlega heimahaga, fjölskyldubönd og ástríðu fyrir listsköpun. Jónas var ljóð- og tónskáld og hafa lög hans lifað í karlakórshefð eins elsta kór landsins, Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps.


Jónas byrjaði ungur að missa sjónina og hefur Sigurdís samið tónlist við persónuleg og myndræn ljóð hans. Á plötunni hafa einnig tónverk hans við ljóð Davíðs Stefánssonar og Þorsteins Valdimarssonar fengið nýtt líf.


Ásamt Sigurdísi spila hinn pólski kontrabassaleikari Mariusz Praśniewski og trommuleikarinn Péter Horváth frá Ungverjalandi. Öll búa þau í Danmörku. Á tónleikunum verður vínylplatan…

Share this event

  • Facebook
  • Instagram
  • Youtube

© 2026 Sigurdís Tyggvadóttir

bottom of page